Kennsluáætlun í útivist veturinn 2012 - 2013
11.09.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Haustönn 2012-2013
Kennsluáætlun í útivist
Kennari: Helga Elísabet Aðalsteinsdóttir
Kennslustundir: 1 stund á viku
Námsefni: Ekkert formlegt námsefni en kennslan verður samþætt útikennslu í öðrum greinum.
Markmið:
- að styrkja gróf og fínhreyfingar
- að byggja upp almenna líkamshreysti og þrek
-að efla jákvætt viðhorf til hreyfingar
-að efla jákvæða sjálfsmynd
-að svala hreyfiþörf og nýjungagirni
-að nemendur þekki nánasta umhverfi skólans
-að njóta þess að vera úti í náttúrunni.
-að nýta tækifæri til náms úti í náttúrunni.
Viðfangsefni : Gönguferðir , fjallganga, sleðaferð, ýmsir námsleikir, ratleikir og samþætting við aðrar námsgreinar í útikennslu.
Námsmat: Símat frá kennara samkvæmt nýju námsmati GÍ.








