Kennsluáætlun í heimilisfræði
19.10.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Kennsluáætlun í heimilisfræði
2. bekkur
Veturinn 2012-2013
Kennari: Guðlaug Jónsdóttir
Kennslustaður: Heimilisfræðistofa 119
Kennslustundafjöldi: 2 kennslustundir þriðju hverja viku allan veturinn
Námsefni: Hollt og gott 1
Markmið:
Að nemendur:
- Læri hvers vegna fæðutegundum er raðað í fæðuhring
- þekki einföld áhöld og geti notað þau
- geri sér grein fyrir hvers vegna og hvenær hendur eru þvegnar
- geri sér grein fyrir hvers vegna góð tannhirða er mikilvæg
Námsmat: Einkunn fyrir færni gefin að vori í tölustöfum. Einnig fá nemendur einkunnir í bókstöfum fyrir þá þætti sem falla undir gildi skólans – virðing, samhugur, menntun (sjá nánar matslista).
Kennsluáætlun:
Í fyrstu viku að hausti fara allir nemendur í 2. bekk með umsjónarkennurum og heimilisfræðikennara að taka upp kartöflur og grænmeti sem þau settu niður og sáðu að vori. Gefið smakk og rætt um hollustu grænmetis.
1.tími: Hreinlæti, handþvottur, nota svuntur, eldhús skoðað, æfing í að þrífa borð og vinda tuskur. Eldhúsáhöld bls: 14. Skoða bls:4-5. Fæðuhringurinn bls:6. Smakk úr öllum fæðuflokkum.
2.tími: Umhverfi okkar bls: 22. Farið út og tínt rusl og skoðað. Kakó í Jónsgarði. 3.tími: Skólanesti bls:7. Vinir og óvinir tannanna bls:8. Grænmetiskarlar bls: 9.
4.tími: Nart milli mála bls: 10 Ávaxtapinnar bls: 11. Uppþvottur bls:12 – æfing.
5.tími: Grallarabrauð bls: 15. Heill og hálfur bls: 13.
6.tími: Hvaðan kemur maturinn bls: 16. Sparikúlur bls: 17.
7.tími: Gersveppurinn bls: 18. Brauðbangsar bls: 19.
8.tími: Hvað er unnið úr mjólkinni bls: 20. Bananadrykkur bls: 21.
9. tími: Matargerð fyrr og nú bls: 24. Góðar og slæmar örverur bls: 28. Ávaxtasalat.
10.tími: Súkkulaðismákökur bls: 27.
11.tími: Skyr í sparibúningi bls:25. Störf á heimilinu bls: 29.
12.tími: Skólataskan mín hrein og fín bls: 26. Klára bók.
Falleg myndaspjöld um eigið öryggi og góða siði. Sögustundir, róleg stund í lok tímans. Kennari segir eða les sögu sem er í tengslum við námsefni vetrarins.








