Kennsluáætlun í dönsku haustönn.

28.10.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Grunnskólinn á Ísafirði


Kennsluáætlun danska 2013 – 2014                                          8. bekkur


Kennarar: Guðríður Sigurðardóttir, Kristín Ólafsdóttir og gestakennari Julie Fleichmann


Vikustundir: fjórar á viku


Námsefni: Unnið með efni frá kennara þar sem áhersla er lögð á talað mál. Nemendur búa til stuttmynd og er þemað Skolen


Markmið:



  • að nemendur geti lesið stuttan texta og skilið í honum aðalatriðin.      

  • að nemendur þjálfist í töluðu máli og réttum framburði.

  • að nemendur geti skrifað einfaldan stuttan texta með algengum orðaforða.

  • að nemendur hafi kynnst dönskum vefsíðum.

  • að nemendur skilji talað mál í tengslum við námsefnið.

  • að nemendur skrifi leiðarbók þar sem þeir skrá og leggja mat á það sem unnið er í


tímanum.


 


Fengum gestakennara frá Danmörku Julie Fleichmann, hún verður í skólanum til 18. okt og kemur aftur 18. nóv og verður til jóla.


Lögð verður áhersla á talað mál.


Byrjað var á undirbúningi að bíómynd þar sem þemað var SKOLEN


Skil á verkefninu var 14. október og þá voru myndirnar sýndar.


Næst tók við Smart  læse og opgavebog kapitelerne: Fritidsinteresser,Idoler, Rigtige Sørøvere.


Juleemne


janúar: Tænk læse og opgavebog: Rend og hop med din krop.