Kennaranemar kveðja

14.03.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í dag var síðasti dagur kennaranemanna í 7.HS, þeirra Fanneyjar Jónsdóttur og Söru Rósar Sigurðardóttur. Þetta hefur verið skemmtilegur tími, mikið um uppbrot og fjölbreytileika. Við höfum verið í samfélagsfræðiþema s.l. þrjár vikur, þar sem við höfum kynnt okkur nokkur Evrópulönd og einnig hefur 7.AY tekið sína útgáfu af þeirri vinnu. 


Við þökkum Fanney og Söru Rós kærlega fyrir skemmtalega samveru.