Kennaranemar í 7.HS

25.02.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Næstu þrjár vikur verða kennaranemarnir Fanney Jónsdóttir og Sara Rós Sigurðardóttir í 7.HS. Þær munu leggja áherslu á samfélagsfræði og flétta hana inn í sem flestar námsgreinar. Nemendum hefur verið skipt í hópa og er hver hópur að undirbúa vikuferð til ákveðins Evrópulands. Það er að mörgu að hyggja áður en farið verður af stað, s.s. að athuga markverða staði, kostnað, ferðaáætlun o.fl.