Kakóstund í Jónsgarði
12.12.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í vikunni fórum við í Jónsgarð og áttum þar notalega stund, hituðum kakó yfir eldi. Við hengdum á greinarnar ljósluktir og var þetta mjóg kósí hjá okkur. Á meðan vatnið hitnaði voru margir snjókarlar sem lifnuðu við. Síðan fengu sér allir heitt kakó og piparkökur. Á leiðinni til baka renndum við okkur nokkrar ferðir á stórum snjóhól.








