Kakófundur í Jónsgarði

14.12.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í morgun kl. 10  fórum við í Jónsgarð í myrkri, hengdum upp kertaluktir í trén og kveiktum eld. Á meðan kakóið hitnaði á hlóðunum fórum við í klukku-leik. Síðan fengum við okkur heitt kakó og borðuðum jólasmákökur með. Þegar við lögðum af stað í skólann var orðið bjart. Enduðum daginn á aðventustund eftir að hafa skrifað á nokkur jólakort.


 


Myndavélin gleymdist  Smile