Jólin, jólin allstaðar...
19.12.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í dag sáu nemendur um að skreyta stofurnar fyrir morgundaginn og var hópnum skipt niður í ákveðnar nefndir. Ein nefndin sá um að skreyta töfluna, önnur sá um að skreyta gluggana, sú þriðja skreytti stofuna, fjórða nefndin bjó til jólatré og sú fimmta, skemmtinefndin, skipulagði Litlu jólin sem eru á morgun. Allt gekk vel og eru krakkarnir ánægðir með afraksturinn sem er fallega skreytt skólastofa. Fréttir herma að skemmtinefndin sé enn að störfum en mikil leynd hvílir yfir dagskrá morgundagsins.
Litlu jólin hefjast kl.9 á morgun og eiga krakkarnir að mæta prúðbúnir. Mega þeir taka með sér smákökur og gos eða fernudrykk.
Við, Hafdís og Bryndís, óskum ykkur og fjölskyldum ykkar gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Takk fyrir samstarfið á árinu sem er að líða :)








