Jólasýning Safnahússins

13.12.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í morgun fór 7.HS arkandi upp í Safnahús til að skoða jólasýningu sem þar stendur yfir. Jóna Símonía Bjarnadóttir tók á móti hópnum og leiddi hann í gegnum sýninguna, sem er í raun eins og uppsett íslenskt heimili frá 5. tug síðustu aldar. Krakkarnir létu fara vel um sig og voru til mikillar fyrirmyndar eins og þeirra var von og vísa. 


Myndir frá heimsókninni má finna hér inni á myndasíðu árgangsins.