Jólastund með 1.bekk

14.12.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Krakkarnir í 1.bekk hlustuðu af miklum áhuga þegar Elías Ari las fyrir þá jólasögu um bangsa sem hafði verið skilinn eftir upp á háalofti. Litlu krakkarnir hópuðust í kringum sögumanninn á meðan hann las, en aðrir sátu ánægðir í fanginu á eða við hliðina á unglingunum. Eftir lesturinn sungu allir saman nokkur vel valin jólalög og dönsuðu 1.bekkingar við lög eins og Nú skal segja á meðan 8.bekkingarnir virtust hafa gleymt slíkum danssporum. Það er augljóst að þessir krakkar eru búnir að kynnast ágætlega og líður vel í félagsskap hvers annars.