Jólakort 8. bekkjar

15.12.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Nokkrir útvaldir nemendur 8. bekkjar hafa að undanförnu verið að útbúa jólakort árgangsins sem allir geta skoðað á litlu jólunum. Þau vildu endilega hafa mynd af árganginum í kortinu, svo að við smelltum nokkrum myndum af þeim í morgun, m.a. þessari sem fylgir hér með og fór í kortið. 


Það voru reyndar ekki allir mættir en þannig er það bara, það gerist ekki oft að allir séu á staðnum í einu.