Jóladagatal umferðarstofu
05.12.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

J óladagatal grunnskólanna, á vegum Samgöngustofu,
hefur göngu sína mánudaginn 1. desember. Tilgangur
dagatalsins er að rifja upp mikilvægar umferðarreglur
sem hverju barni er nauðsynlegt að kunna. Alla daga
fram að jólum birtist ný spurning sem grunnskólabörn
geta svarað þegar þau opna jóladagatalið á slóðinni
www.umferd.is. Með þátttöku komast nemendur í verðlaunapott
en tveir heppnir þátttakendur eru dregnir út á
hverjum degi og fá þeir senda Jólasyrpu frá Eddu útgáfu.
Þátttakendur geta svo merkt svör sín með nafni
bekkjar og skóla en þannig kemst bekkurinn í sérstakan
bekkjarverðlaunapott. Í janúar verður svo einn heppinn
bekkur dreginn út og hlýtur hann að launum pítsuveislu
og DVD mynd. Nemendur og bekkir eru hvattir til að
taka þátt í jóladagatalinu, sem er í senn skemmtilegt og
fræðandi.
Jóladagatal grunnskólanna á
www.umferd.is frá 1. til 24. desember.








