Jóladagatal 2012
30.11.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Nú eru aðeins 24 daga og ekki seinna vænna að útbúa jóladagatal. Í ár er jóladagatal 4. bekkjar kirkja með ljómandi fallegum gluggum sem skreyttir eru af mikilli list. Hvert barn fékk það verkefni að skreyta einn glugga og skrifa síðan eitt erindi í uppáhalds jólalaginu sínu inn í gluggann. Börnin drógu um dagsegningar og þegar sá dagur rennur upp syngjum við uppáhalds jólalagið þeirra. Í dag komu 22 gluggar á kirkjuna og á mánudaginn bætast 2 gluggar við þegar stelpurnar sem voru í fríi í dag koma aftur í skólann.








