Jól í skókassa
02.11.2024 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Hið árlega verkefni 7. bekkjar ,,Jól í skókassa" er yfirstaðið. Nemendur fóru með rúmlega 40 kassa í kirkjuna á fimmtudaginn og það var gaman að sjá hversu mikil gleði var á meðal þeirra og hversu stolt þau voru að gefa svona af sér. Þessar jólagjafir munu gleðja börn í Úkraínu eins og undanfarin ár.








