Jól í skókassa
01.11.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í morgun fór árgangurinn upp í Ísafjarðarkirkju og afhenti sr. Magnúsi Erlingssyni og Elínu H. Friðriksdóttur 11 jólapakka handa fátækum börnum í Úkraínu.
Krakkarnir eru búnir að vera mjög duglegir við söfnunina og vinna mjög óeigingjarnt starf. Það má með sanni segja að sælla sé að gefa en þiggja og erum við kennararnir mjög stoltir af þessum flottu krökkum.
Sr. Magnús þakkaði krökkunum hjartanlega fyrir þeirra framtak og veitti þeim viðurkenningarskjal að launum.








