Jól í skókassa
22.10.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Nú er árgangurinn á fullu að safna jólagjöfum handa fátækum börnum í Úkraínu. KFUM stendur fyrir þessari árlegu söfnun undir heitinu ,,Jól í skókassa" þar sem gjafirnar eru settar í innpakkaðan skókassa. Þegar við verðum búin að fylla nokkra kassa, þá förum við með þá upp í Ísafjarðarkirkju, sem sér um að koma þeim til KFUM í Reykjavík.
Krakkarnir eru mjög áhugasamir og viljugir að taka þátt í þessu gefandi verkefni og er nokkuð ljóst að kassarnir verða fleiri en lagt var upp með í fyrstu.








