Dagur gegn einelti
Stöndum saman í baráttu gegn einelti
Verkefnisstjórn í aðgerðum gegn einelti hefur ákveðið að standa að sérstökum degi gegn einelti 8. nóvember 2011. Verkefnisstjórnin samanstendur af fulltrúum fjármálaráðuneytis , mennta- og menningarmálaráðuneytis og velferðarráðuneytis , og er hún skipuð í kjölfarið á útgáfu greinargerðar um mögulegar aðgerðir gegn einelti í skólum og á vinnustöðum (pdf) sem kom út í júní 2010.
Í tilefni dagsins var undirritaður þjóðarsáttmáli um jákvæð samskipti. Forsætisráðherra er verndari átaksins og velferðarráðherra, fjármálaráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra undirrituðu sáttmálann fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og Jón Gnarr borgarstjóri fyrir hönd Reykjavíkurborgar. Ennfremur eru fjöldi félaga og samtaka aðilar að samningnum. Við undirritunina í Höfða voru einnig afhent gul armbönd sem gerð hafa verið í tilefni dagsins og bera yfirskriftina: Jákvæð samskipti. Þeim verður í kjölfarið dreift til almennings eftir því sem að upplag endist.
Einelti spyr ekki um aldur, þjóðfélagshópa eða kyn og það þrífst einfaldlega allsstaðar þar sem það er látið viðgangast. Ábyrgð okkar allra er því mikil og það er í okkar höndum að vinna bug á þessu þjóðfélagsmeini. Það er ekki flókið ef allir taka höndum saman og sammælast um ákveðna sátt, þjóðarsáttmála um jákvæð samskipti.
Verkefnastjórnin hvetur alla þá fjölmörgu aðila og samtök, sem starfa á þeim vettvangi sem átakið nær til, til þess að taka höndum saman og helga 8. nóvember n.k. baráttunni gegn einelti. Sérstaklega er þessu beint til leikskóla, grunn- og framhaldsskóla, félags- og frístundamiðstöðva, auk vinnustaða og stofnana. Ýmislegt er að hægt að gera á þessum baráttudegi, s.s. með táknrænum viðburðum eða viðfangsefnum sem hafa það að markmiði að beina umræðunni að einelti og afleiðingum þess í samfélaginu.
Verkefnisstjórnin vonast til að sem flestir í samfélaginu skrifi undir þjóðarsáttmálann og taki þátt í því að setja umræðuna um einelti í brennidepil þennan dag – málefnið er brýnt og til mikils að vinna ef í sameiningu tekst að koma á þjóðarsáttmála um jákvæð og uppbyggileg samskipti.
F.h. Verkefnastjórnar um aðgerðir gegn einelti
Árni Guðmundsson verkefnastjóri









