Íslenskupróf
21.05.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Á miðvikudaginn verður vorpróf í íslensku. Prófað verður í stafsetningu, málfræði og lesskilningi. Krakkarnir hafa nú fengið æfingar í málfræðinni með sér heim til upprifjunar. Textinn í stafsetningarprófinu er hér fyrir neðan og verða þau látin skrifa valin orð úr honum í prófinu.
Texti á stafsetningarprófi 5. bekkjar
Þau Hafliði og systir hans eru rík. Þau eiga hvort annað og sprellfjöruga ömmu. Í dag ætla þau í jeppanum hennar í berjamó. Þau búa ekki langt frá Ísafirði en ætla til Bolungarvíkur. Þar í nágrenninu vaxa aðalbláber. Börnunum finnst þau ljúffeng. Sú gamla notar berin í sultu. Þau eru með pönnukökur í nesti. Það er hlýtt í veðri, einkum um miðjan daginn. Þetta er í ágúst og töluvert af fólki á ferðinni. Dagurinn er fljótur að líða úti í náttúrunni.








