Íslenska haustönn
17.12.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Kennsluáætlun í íslensku fyrir 8. bekk, haustönn 2014
Kennarar: Herdís M. Hübner og Þóra Karlsdóttir
Nemendur eru 36. Kennt í tveimur hópum, 6 kest. á viku.
Námsefni haustannar: Málfinnur, Skriffinnur, Málið í mark – fallorð, Egils saga (í endursögn Brynhildar Þórarinsdóttur), Fýkur yfir hæðir og Innrásin frá Mars.
Markmið:
- Að nemendur átti sig á flokkun og helstu beygingaratriðum fallorða, sagnorða og óbeygjanlegra orða.
- Að nemendur þjálfist í að tjá sig og beita mismunandi stíl í rituðu máli með tilliti til viðtakenda og efnis.
- Að nemendur lesi mismunandi texta og kunni að beita mismunandi lestraraðferðum.
- Að nemendur þjálfist í lestri, bæði hátt og í hljóði.
- Að nemendur geri sér grein fyrir grunnhugtökum í umfjöllun um bókmenntir.
- Að nemendur geti tjáð sig skýrt og áheyrilega.
25. ág. Fyrsti skóladagur. Bækur sóttar. Rætt um vinnubrögð og veturinn framundan.
26.-29. ág. 27. ág. Fjallganga yfir Fellsháls. Egils saga kynnt og lesnar bls. 7-14 (Egill sem barn). Málið í mark bls. 1-2: greinir. Ritun við mynd. Frjáls lestur.
1.-5. sept. Egils saga, bls. 15-21 (Egill og Þórólfur í Noregi) Ritun eða önnur úrvinnsla úr atburðum sögunnar. Málið í mark, bls. 3: greinir. Frjáls lestur.
8.-12. sept. Lestrarátak Ritun og lestur (8. sept. er dagur læsis). Egils saga, bls. 22-27 (Egill og Þórólfur í Englandi). Málið í mark, bls. 4-5: nafnorð. Ritun: ólík málsnið. Frjáls lestur.
15.-19. sept. 16. sept. er norræna skólahlaupið. 18. sept. er tónlist fyrir alla og fyrirlesturinn Ást gegn hatri. Málið í mark, bls. 6-7: kyn og tala. Egils saga, bls. 28-33 (Egill heimtir arfinn). Frjáls lestur.
22.-26. sept. Málið í mark, bls. 8-9: tala, kyn og fallbeyging. Egils saga, bls. 34-38 (Höfuðlausn). Frjáls lestur. Ritun: Segið frá fyrirlestri Selmu Hermannsdóttur.
26. sept. er evrópski tungumáladagurinn.
29. sept.-3. okt. 29. sept. er starfsdagur kennara. Málið í mark, bls. 10-11: fallbeyging. Egils saga, bls. 39-43 (Egill sækir arfinn). Frjáls lestur. Ritun: frjálst efni. Framhaldssögulestur: Það var hægt – ævisaga Helen Keller.
6. -10. okt. Lestrarverkefni fyrir september unnið 6. okt. (10. okt. er íþróttahátíð í Bolungarvík)
Málið í mark, bls. 12-13: kyn, tala og fall . Egils saga, bls. 44-49 (dauði Böðvars). Frjáls lestur. Ritun:
hugleiðingar Þorgerðar. Segja frá kjörbók mánaðarins (munnlega).
13.-17. okt. Málið í mark, bls. 14-15: veik og sterk beyging no. Málið í mark, bls. 14-15: veik og sterk beyging no. Egils saga, bls. 50-51 (sögulok). Eftirmáli og skýringar bls. 52-64. Verkefni. Frjáls lestur. Ritun: Úrvinnsla úr Egils sögu. 17. okt. er vetrarfrí
20.-24. okt. 20. okt. er vetrarfrí og 21. okt. er starfsdagur. Málið í mark, bls. 16-17: fallbeyging, hlutstæð og óhlutstæð orð. Frjáls lestur. Ritun: atvinnuumsókn. Annar hópurinn les nú Innrásina frá Mars en hinn les Fýkur yfir hæðir. Gert er ráð fyrir að lestur þeirra taki 4 vikur og þá skipta hóparnir um bók.
27. - 31. okt. Málið í mark, bls. 18 og 19: stofn no. og hljóðbreytingar. Frjáls lestur. Ritun við mynd. Könnun í málfræði.
3.-7. nóv. Lestrarverkefni fyrir október unnið 3. nóv. Í þessari viku verður kvikmyndin Ikingut sýnd og unnið verkefni úr henni – í tengslum við 8. nóv. sem er baráttudagur gegn einelti.
10.-14. nóv. 12. nóv. eru foreldraviðtöl. Málið í mark, bls. 20 og 21: lýsingarorð. Frjáls lestur. Ritun: lokið við verkefnin frá síðustu viku.
17.-21. nóv. (16. nóv. er dagur ísl. tungu). Málið í mark, bls. 22 og 23: fallbeyging og stigbreyting lo. Frjáls lestur. Ritun: bréf til Jónasar Hallgrímssonar. Sá hópur sem er búinn með Innrásina frá Mars tekur nú Fýkur yfir hæðir – og öfugt.
24. -28. nóv. Málið í mark, bls. 24 og 25: stigbreyting lo. Frjáls lestur. Ritun: frétt í dagblaði.
1.-5. des. Lestrarverkefni fyrir nóvember unnið 1. des. Málið í mark, bls. 26 og 27: stig, kyn, tala og fall lo. Frjáls lestur. Ritun: viðtal.
8.-12. des. Málið í mark, bls. 28 og 29: sterk og veik beyging lo. Frjáls lestur. Ritun: viðtal, frh.
15.-19. des. 18. des. er skreytingadagur. 19. des. eru litlu jól. Frjáls lestur.
Jólafrí
5.-9. jan. 5. jan. er starfsdagur. Frjáls lestur.
12.-16. jan. Málið í mark, bls. 30 og 31: fornöfn. Byrjað á Laxdælu. Frjáls lestur. Ritun: Nýja árið.








