Íslenska - vor 2015
12.02.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Kennsluáætlun í íslensku
5. bekkur vor 2015
Kennarar: Auður Yngvadóttir og Helga S. Snorradóttir
Námstilhögun: Kennt er í tveimur misstórum hópum, sex kennslustundir á viku. Lögð er áhersla á hljóðlestur á hverjum degi.
Námsefni : Vanda málið – þetta er málið, lesbók 1 og 2. Málrækt 1, Mál er miðill lesbók og vinnubók, Skrift 4 og 5, Ljóðspor.
Markmið:
Talað mál, hlustun og áhorf
Að nemendur:
- þjálfist í að koma fram fyrir hóp og flytja eigin texta og ýmis bókmenntaverk (sögur og ljóð).
- Geti tekið þátt í umræðum og komist að niðurstöðu í hópi.
- Þjálfist í að hlusta á upplestur á sögum, ljóðum og leikritum.
- Geti nýtt sér myndefni og rafrænt efni á gagnrýninn hátt.
- Þjálfist í að hlusta á umræður, taka þátt í þeim og halda athygli.
- Geti átt góð samskipti, hlustað, gætt tungu sinnar og sýnt viðeigandi kurteisi.
Lestur og bókmenntir
Að nemendur:
- Lesið a.m.k. 250 atkvæði á mínútu að vori.
- Lesi skýrt og greinilega og séu læsir á flesta texta almenns efnis.
- Geti beitt nákvæmnislestri og leitarlestri.
- Geti nýtt sér heimildir úr bókum og af neti til einfaldrar úrvinnslu.
- Lesi fjölbreytta bókmenntatexta og læri ákveðin ljóð utanbókar m.a. Ó, faðir gjör mig lítið ljós eftir Matthías Jochumsson, Vorperla eftir Halldór Kristjánsson og Fjallganga eftir Tómas Guðmundsson.
- Þjálfist í endursögn á sögum og frásögnum.
- Læri að þekkja mikilvæg bókmenntahugtök.
- Geti greint aðalatriði frá aukaatriðum.
- Geti gert grein fyrir sögu sem þeir hafa lesið og þeim áhrifum sem hún hefur á hann (ritdómur).
- Þekki nokkra þekkta barnabókahöfunda.
Ritun
Að nemendur:
- Skrifi tengda og skýra skrift, nái góðum skriftarhraða og þrói persónulega rithönd,
- Fari eftir helstu stafsetningarreglum og noti hjálpargögn svo sem orðabækur.
- Fáist við fjölbreytileg ritunarverkefni.
- Kynnist því að skrifa mismunandi stíl m.t.t. efnis og viðtakanda.
Málfræði
Að nemendur:
- Þekki no., lo. og so. og helstu einkenni þeirra.
- Læri að fallbeygja nafnorð og lýsingarorð.
- Geti nýtt sér stofn orða við réttritun og þekki uppflettimynd fallorðs.
- Geti fundið kyn, tölu og fall nafnorða og lýsingarorða.
- Þekki nútíð og þátíð sagna.
Námsmat: Hraðlestrarpróf að lágmarki 2 yfir veturinn, fleiri hjá þeim sem ekki hafa náð takmarki vetrarins. Þeir sem læra tilskilin ljóð fá 10 í einkunn, en aðrir sem leggja sig ekki fram um það taka ljóðapróf að vori. Prófað í málfr., stafsetningu og lessk. á báðum önnum og skrift að vori.
Vika |
Námsefni |
Annað |
26. – 30. jan. |
Þetta er málið lesbók 1 bls.74-78, Málrækt 1, |
|
2.- 6.feb. |
Þetta er málið lesbók 1 bls.79-83, Málrækt 1, |
|
9.-13.feb. 11. for.dagur |
Þetta er málið lesbók 1 bls. 84-89, Málrækt 1, 3 bls., stafsetning, ritun og hljóðlestur. |
|
16.-20.feb. 17.starfsd./ |
Þetta er málið lesbók 1 bls. 97-103, endursögn. |
|
23.-27.feb. |
Læsi til náms – verkefni frá Háskólanum á Akureyri auk vinnubóka. |
Ljóðið Íslands minni eftir Jónas Hallgrímsson lært utanbókar. (Þið þekkið fold..) |
2.-6.mars |
Læsi til náms – verkefni frá Háskólanum á Akureyri auk vinnubóka. |
5. hraðlestrarpróf vetrarins |
9.-13.mars |
Læsi til náms – verkefni frá Háskólanum á Akureyri auk vinnubóka . |
|
16.-20.mars |
Læsi til náms – verkefni frá Háskólanum á Akureyri auk vinnubóka. |
|
23.-27.mars 25.-26. árshátíð |
Læsi til náms – verkefni frá Háskólanum á Akureyri auk vinnubóka. |
|
30.mar-6.apr. páskaleyfi |
|
|
7.-10.apr.
|
Læsi til náms – verkefni frá Háskólanum á Akureyri. Orðatiltæki og málshættir. |
|
13.-17.apr. |
Læsi til náms – verkefni frá Háskólanum á Akureyri. Orðatiltæki og málshættir. |
Ljóðið Vorperla eftir Halldór Kristjánsson lært utanbókar. |
20.-24.apr. 23. sumard.fyrsti 24. vorfrí |
Læsi til náms – verkefni frá Háskólanum á Akureyri. Orðatiltæki og málshættir. |
|
27.apr.-1.maí |
Læsi til náms – verkefni frá Háskólanum á Akureyri. Orðatiltæki og málshættir. |
|
4.-8.maí |
Læsi til náms – verkefni frá Háskólanum á Akureyri auk vinnubóka. |
6. hraðlestrarpróf vetrarins |
11.-15.maí 14.maí uppst.dagur |
Læsi til náms – verkefni frá Háskólanum á Akureyri. |
|
18.-22.maí |
Læsi til náms – verkefni frá Háskólanum á Akureyri. Upprifjun og próf. |
|
25.-29.maí |
Prófadagar |
|
1.-3.júní |
Útivist. |
|








