Íslandsheimsókn - ferðasaga

28.04.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Dagana 22.-26. apríl voru góðir gestir Grunnskólans á Ísafirði í heimsókn á Íslandi í tengslum við Comeniusarverkefnið „All different, all the same, Europe‘s children.“ Þetta voru 21 manns frá Portúgal, Rúmeníu, Póllandi og Kýpur, 14 fullorðnir og 7 unglingar.


Dagskrá heimsóknarinnar var þéttskipuð og fjölbreytt og má segja að hver mínúta hafi verið nýtt til hins ýtrasta. Byrjað var á heimsókn í Bláa lónið þar sem fólkið lét líða úr sér eftir flugið, síðdegis á þriðjudeginum. Daginn eftir var farið að Geysi, Gullfossi og Þingvöllum og síðan keyrt vestur í Reykjanes þar sem dýrindis kvöldverður beið gestanna – að ógleymdum þeim krásum sem voru í boði  blíðviðrisins og náttúrunnar, en Ísafjarðardjúp var í sínum allra fegursta skrúða þetta kvöld. Haldið var áfram sem leið lá til Ísafjarðar með stuttu stoppi í Hvítanesi þar sem selur lá á steini og fetti sig og bretti fyrir myndavélarnar. Hópurinn var kominn inn á hótel Ísafjörð fyrir miðnætti.


Að morgni sumardagsins fyrsta var byrjað á gönguferð um bæinn og síðan ekið til Suðureyrar þar sem rjómapönnukökur og kaffi biðu á borðum hjá fiskvinnslunni Íslandssögu og síðan var fyrirtækið og vinnslan skoðuð undir öruggri leiðsögn Óðins og Oddnýjar. Vakti heimsóknin mikla hrifningu enda fyrirtækið allt hið glæsilegasta.


Eftir ljúffengan hádegisverð á Húsinu, þar sem gestirnir rákust á landa sína frá Kýpur og Portúgal, sem vakti mikla lukku, var haldið niður á Sundahöfn og um borð í bát Hafsteins og Kiddýjar sem sigldi í rjómalogni spegilsléttan sjó inn í Vigur. Náttúrufegurðin var ótrúleg og þegar við bættist hnúfubakur að leik rétt fyrir utan eyjuna og selafjöld sem sleikti sólskinið í fjörunni, var eins og við værum stödd í ævintýraveröld.


Um kvöldið var fiskihlaðborð í Tjöruhúsinu og það sveik ekki frekar en fyrri daginn. Síðan var farið í Edinborgarhúsið þar sem 10. bekkur stóð fyrir fjölmenningarkvöldi. Nemendur 10. bekkjar léku þar listir sínar á hin ýmsu hljóðfæri og gestirnir tóku virkan þátt og reyndust einnig kunna ýmislegt fyrir sér. Nemendur 10. bekkjar sýndu líka þjóðbúninga og dönsuðu gömlu dansana við mikinn fögnuð. Dagskránni lauk með því að salurinn söng hinn alþjóðlega „Meistara Jakob“ á ýmsum tungumálum.


Á föstudegi var haldið í skólann og hann skoðaður í krók og kring. Gestirnir lýstu mikilli hrifningu af öllu sem þeir sáu þar og þurftu margs að spyrja og margt að mynda. Svo var farið í Hamra þar sem Gísli Súrsson beið og kynnti menningararfinn fyrir hinum erlendu gestum.


Eftir hádegisverð í mötuneyti skólans dreif hópurinn sig upp á Seljalandsdal. Þar renndu menn sér á vélsleðum, Stigasleðum og snjóþotum og flestir yngdust um nokkra áratugi, fóru í snjókast, bjuggu til snjókarla og léku við hvurn sinn fingur. Þetta var mikið ævintýri fyrir marga í hópnum sem höfðu aldrei áður séð snjó.


Um kvöldið skiptu nemendur og kennarar liði, nemendurnir fóru í pizzupartý í Félagsmiðstöðinni með unglingum bæjarins en fullorðna fólkið átti skemmtilega stund fram eftir kvöldi í Guðmundarbúð ásamt starfsfólki skólans.


Að morgni laugardagsins var farið í Fab lab, stafræna smiðju sem Nýsköpunarmiðstöð rekur í húsnæði Menntaskólans og þar fengu unglingarnir í hópnum að spreyta sig við að búa til límmiða undir öruggri leiðsögn Laufeyjar Eyþórsdóttur sem kennir nemendum G.Í. á þessa undrasmiðju.


Að loknum hádegisverði í Edinborgarhúsinu var haldið aftur til Reykjavíkur. Það tók nokkurn tíma að kveðja og sérstaklega voru unglingarnir tregir til að yfirgefa Ísafjörð en urðu að láta sig hafa það að lokum, ákveðnir í að byrja strax að safna fyrir næstu Íslandsferð.


Heimferðin gekk vel og nú rignir inn tölvupóstum og sms-um með hástemmdum lýsingum á því hversu dásamleg þessi ferð hafi verið, hvað við eigum stórkostlega fallegt land, hve vingjarnlegt og yndislegt fólkið hafi verið og hversu glæsilegur og frábær skólinn okkar sé.  


Það er gaman fyrir okkur heimafólkið að horfa stundum í kringum okkur með gests augum og sjá hvað við njótum mikilla forréttinda hér á ýmsum sviðum.