Í vikulok

22.02.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í þessari viku tókum við fyrir bókina um Jóa og baunagrasið.  Í tengslum við þá bók lögðum við inn stafina V og X og unnum ýmis verkefni og bjuggum meðal annars til veggmynd af risa.  Við gróðursettum líka baunir og er ætlunin að ná að rækta baunagras.  Hvort baunagrasið okkar verði töfrum gætt eins og baunagrasið í sögunni um hann Jóa skal ósagt látið og tíminn verður bara að leiða það í ljós.  Í næstu viku verða svo síðustu stafirnir lagðir inn en það eru stafirnir Y og Ý.