Í vikulok

01.02.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í þessari viku tókum við fyrir bókina Elsku besti pabbi, í byrjendalæsinu.  Mörg skemmtileg verkefni voru unnin í tengslum við bókina og pöbbum og því sem þeir taka sér fyrir hendur var gefin sérstök athygli.  Niðurstaðan er sú að pöbbum er margt til lista lagt m.a. vinna þeir, lesa Fréttablaðið, horfa á Kastljós, kyssa mömmur og hugsa vel um börnin sín.  Já og svo stelast þeir stundum til að fá sér gos!