Í vikulok

23.11.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í liðinni viku var margt brallað í fyrsta bekk.  Okkur var m.a. boðið á leiksýningu hjá Kómedíuleikhúsinu á leikritið Bjálfansbarnið.  Þarna mættu nokkrir gamlir jólasveinar með skrýtin nöfn og léku listir sínar.  Við skemmtum okkur öll mjög vel og krakkarnir fengu svo að máta sig í hlutverkin í lok sýningar.  Við þökkum Elvari Loga leikhússtjóra kærlega fyrir okkur.