Hvað gera mömmur?
21.02.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í þessari viku unnum við með bókina
„Mamma er berst“ eftir Björk Bjarkadóttur í byrjendalæsinu.
Við gerðum ýmisverkefni tengd sögunni, t.d. orðasúpu, dýrabingó,
veltum fyrir okkur orðinu afkvæmi og spáðum í hvað afkvæmi ýmissa dýra heita.
Í dag veltum við síðan fyrir okkur spurningunni hvað mömmur gera.
Auðvitað vissu börnin vel hvað mömmur gera og hvaða hlutverkum þær sinna t.d.
-gefa þær börnum að drekka og borða
-vagga börnum og svæfa þau
-hugsa vel um börnin
-fara með þau á slysadeildina ef þau meiða sig (fá gata á hausinn)
-fara með börnin í skólann og sækja þau
-fara í vinnuna
-fara suður
-fara í göngutúr
-fara í sund
-fara í heimsókn
-passa börnin sín
-hjálpa börnum
-hjálpa börnum að vera vinir
-fara með börnin til læknis
-ala börnin vel upp
-hjálpa börnunum að lesa og læra
-mamma þarf að djamma ???
-kyssa og kela
-hugsa um sig sjálfar
-knúsa
-fara með börnin á skíði
-þvo þvott
Mömmur eru bestar í heimi.








