Hópavinna í stærðfræði

06.10.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Síðustu viku höfum við brotið upp stærðfræðikennsluna og unnið í hópum þvert á árganginn. Nemendum var skipt í 10 hópa og allir vinna út frá tölfræðikafla bókarinnar og gera kannanir, athuganir eða rannsóknir. Nú er komið að endalokum og eiga allir hópar að kynna sína rannsóknavinnu á þriðjudaginn og verður fróðlegt og skemmtilegt að sjá hvað kemur út úr þessari vinnu.