Hópavinna í samfélagsfræðinni
24.09.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Þessar vikurnar erum við að lesa bókina Ein grjóthrúga í hafinu, þar sem stiklað er á stóru í Íslandssögunni frá siðaskiptum til ársins 1800. Krakkarnir hafa verið að vinna í hópum að ýmsum verkefnum s.s. varðandi álfa, þjóðsögur um Heklu, Tyrkjaránið, Jörund hundadagakonung og húsakynni á Íslandi.
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum gengur vinnan vel og ánægjan skín úr hverju andliti. Fleiri myndir er að finna inni á myndasíðu árgangsins.








