Hópavinna í samfélagsfræði
17.10.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Þessa dagana er árgangurinn að fræðast um sturlungaöldina og ýmsa bardaga sem henni fylgdu. Krakkarnir vinna í hópum og gera plaköt um Flugumýrarbrennu, Örlygsstaðabardaga, Flóabardaga, Haugsnesbardaga og Bæjarbardaga. Að því loknu eru verkefnin kynnt bekknum og hengd upp á vegg.








