Hlutverkin okkar

07.10.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Um daginn skilgreindum við hlutverk kennara annars vegar og hlutverk nemenda hins vegar í bekknum okkar. Við höfum unnið með þau út frá því hvað hver á að gera hvað í tímum. Margir standa sig af stakri prýði og eiga hrós skilið. Við leitumst sífellt eftir því að bæta starfið í bekknum okkar og við sjáum framfarir.


 


Næst á dagskrá í þessum málum verður að komast að samkomulagi um bekkjarreglur, þar sem allir fá að taka þátt og hafa áhrif á niðurstöðuna.