Hlutverkin

21.09.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikan hefur gengið vel hjá okkur. Í lífsleikninni höfum við verið að vinna með hlutverkin þ.e. hlutverk nemenda, hlutverk kennara ohg hlutverk foreldra. Þetta er hluti af uppbyggingarstefnunni sem skólinn vinnur eftir og það er gaman að heyra hve meðvitaðir krakkarnir eru og tilbúin í umræður um góð samskipti, framkomu og hegðun. Þeir virðast líka vera nokkuð sammála um hlutverkaskiptingu foreldra og barna.


Hlíf