Hjólahjálmar og útivistartími
03.05.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Nú er hjólavertíðin komin á fullt skrið og því ekki úr vegi að minna á hlífðarhjálmana.
Börn yngri en 15 ára skulu nota hlífðarhjálm við hjólreiðar samkvæmt lögum frá 1999.
Farnar verða hjólaferðir á vegum skólans og eiga að sjálfsögðu allir að vera með hjálm í þeim ferðum
Þann 1. maí breyttist útivistartími krakkanna og er hann nú til 22:00.
Nú þurfa þau að vakna snemma út maí og því er nauðsynlegt að huga að því að þau fái samt sem áður nægan svefn fyrir verkefni dagsins. Meðalsvefnþörf 9-11 ára barna er 10-11 klst.
Á heimasíðu heimilis og skóla er forvitnileg grein sem við látum fylgja hér með.
Svefnþörf barna og unglinga
• Foreldrar vita oft ekki af því að krakkarnir eru vakandi löngu eftir að foreldrar fara að sofa.
• Það eru til krakkar sem hafa gsm-símann í eða við rúmið og eru alltaf viðbúin því að hann hringi eða gefi frá sér píp sem segir til um að viðkomandi hafi fengið SMS-skilaboð. Krakkar nái ekki djúpa svefninum sem er nauðsynlegur til að fá raunverulega hvíld og svefnlotur verða styttri.
•
En hver er svefnþörfin?
5 til 8 ára 10 – 12 klst.
9 til 12 ára 10 - 11 klst.
13 til 15 ára 9 – 10 klst.
• Þeir sem ekki fá nægan svefn og hvíld safna upp “svefnskuld”, jafnvel þó svo að þeim finnist þeir úthvíldir og alls ekki í þörf fyrir að sofa lengur.
• Ef of lítill svefn er viðvarandi þá er vaknað að morgni með “tóman tank” og skóladagurinn byrjar ekki eins og best verður á kosið.
• Viðvarandi svefnskortur getur leitt til; þunglyndis, einbeitingarskorts, minni námsárangurs, skertra viðbragða og minna úthalds.
• Í Bandaríkjunum var gerð tilraun á mjög góðum námsmönnum þar sem hver og einn var “rændur” klukkustundar svefni á nóttu. Niðurstöður urðu mælanlegri minni námsárangur og skortur á einbeitingu.
• Áhugavert að fá nemendur til að halda svefndagbók í eina til tvær vikur þar sem þeir skráðu hjá sér; hvenær farið er að sofa, hve lengi sofið, hvort sofið er á daginn og hvað nemendur eru að gera áður en þeir fara að sofa.
• Á kynþroskaaldri virðist líkamsklukkan gefa frá sér þau skilaboð að unglingurinn upplifir sig úthvíldan og að hann hafi sofið nóg – finna ekki fyrir þreytu. En í raun eru þetta röng skilaboð því unglingar verða að sofa og fá nægilega hvíld.
• Þeir sem eru að horfa í tölvuskjá / sjónvarp rétt áður en farið er að sofa finna oft fyrir því að svefninn lætur á sér standa. Það er birtan og sindrandi geislar frá skjánum sem virkar örvandi og dregur þar með úr getunni til að sofna. Í herbergjum barna og unglinga er oft stutt í sjónvarpið og setið er ofan í tölvuskjánum þannig að útgeislunin er mikil og beint í andlitið.
• Góð leið til að komast í ró er að lesa eða láta lesa fyrir sig, fara í heitt bað, markviss slökun og góð og regluleg hreyfing.
• Einnig þarf að hafa það í huga að í kóladrykkjum + kaffi og te er koffín sem er örvandi og torfeldar þess vegna svefn. Börn og unglingar á Íslandi drekka óhóflega mikið af gosdrykkjum og þar eru kóladrykkir stór hluti.
• Ofbeldis- og spennuleikir seint að kvöldi hafa örvandi áhrif á hugarástandið og því erfiðara að finna nauðsynlega ró sem er nauðsynleg til að sofna.
Tekin af heimasíðu heimilis og skóla : http://www.heimiliogskoli.is/foreldrasamstarf/fyrir_foreldra/svefnthorfbarnaogunglinga








