Hjólaferð í Tungudal

26.05.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Ferðin í dag gekk mjög vel. Nemendurnir fóru í náttúrufræðiverkefni í skóginum, drukku nesti og skemmtu sér svo á útivistarsvæðinu. Eftir það hjóluðu þau í frístund og kláruðu daginn í skólanum.


 


Á miðvikudaginn förum við líka í Tungudal og nemendur hlakka til að hjóla aftur þangað. Í það skiptið er vorverkadagur sem við endum með því að grilla pylsur í skóginum.