Hjólaferð í Engidal

30.05.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í morgun fór 5. bekkur í hjólaferð inn í Engidal í blíðskaparveðri. Lagt var af stað kl. 9:00 frá skólanum og hittum við krakkana úr firðinum á gatnamótunum á Hafrafellshálsi. Þaðan lá svo leiðin inn að stöðvarhúsi Orkubúsins og tóku Pálmi Jónsson, Kristín Ósk Sigurjónsdóttir og Martha Þorsteinsdóttir á móti hópnum með svaladrykk og kexi, sem var vel þegið eftir hjólatúrinn. Pálmi sýndi svo húsið og sagði sögu þess og stöðvarinnar.


Á bakaleiðinni komum við svo við í fjárhúsunum hjá Kristjáni Andra Guðjónssyni (föður Oddrúnar og Guðjóns) og fengum að skoða og klappa nokkrum lömbum og vorum leyst út með ís. Aldeilis frábærar móttökur sem við fengum í dag og kunnum við Pálma og hans fólki hjá Orkubúinu ásamt Kristjáni Andra, bestu þakkir fyrir.


Það voru svo sælir og útiteknir krakkar sem hjóluðu heim um hádegisbilið. Sjá má heilmargar myndir úr ferðinni inni á myndasíðunni.