Hjólaferð
30.05.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í dag fórum við hjólandi út í Hnífsdal og áttum alveg frábæran dag.
Við fórum í brennó, ratleik og "boðhjól" (boðhlaup á hjólum). Svo höfðum við frjálsan tíma sem margir nýttu í aparóluna góðu.
Á heimleiðinni komum við við í fjörunni við HG og sumir notuðu tækifærið og bleyttu aðeins í stóru tá.
Á myndasíðunni okkar eru skemmtilegar myndir frá deginum.
Á morgun er mæting við Sundhöllina kl. 8:30 og þeir sem búa inni í firði við strætóskýlið á Múlalandi kl. 9:00.
Þeir sem eru í mötuneytinu þurfa ekki að taka með sér nesti.








