Hitt og þetta
15.05.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Tilkynningar:
- Nú eru aðeins þrjár vikur eftir af skólanum, þessi vika er síðasta hefðbundna vikan okkar.
- Á þriðjudaginn verður könnun upp úr kafla 7 í Stiku 2b (margföldun og deiling bls. 66-97).
- Á fimmtudaginn verður enskupróf.
- Á föstudaginn afhenda nemendur Norðurlandavinnubækurnar sínar til yfirferðar (bókin gildir til einkunnar í samfélagsfræði), sumir eiga eftir að ljúka nokkrum blaðsíðum.
- Við erum með tvo prófadaga þar sem nemendur taka prófið og fara svo heima að því loknu; miðvikudaginn 27.5 verður samfélagsfræðipróf (Norðurlöndin) og föstudaginn 29.5 verður framsagnarpróf. Önnur próf taka þau í kennslustundum.








