Hesteyrarferð
28.08.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í dag fimmtudag eru nemendur mættir í skólann eftir mjög velheppnaða ferð að Hesteyri. Lagt var af stað sl. þriðjudag með Sjóferðum Hafsteins og Kiddýjar og komið að Hesteyri kl; 10. Byrjað var á því að tjalda og svo var lagt af stað í gönguferðina, sem var að þessu sinni í Miðvík þar sem sandurinn var óspart notaður til leikja og einnig var baðað í sjónum þar. Þá var gengið yfir í Stakkadal og þaðan til Hesteyrar. Var þetta um 7 klst gangur og stóðu nemendur sig ótrúlega vel í göngunni. Um kvöldið var gengið að Stekkeyri í myrkri og birtust þar ýmsar verur á leiðinni sem ullu óhug hjá nokkrum nemendum. Það voru ánægðir og þreyttir nemendur sem gengu til náða þetta kvöld í tjöldum sínum.








