Heimsókn til Súðavíkur

03.06.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í gær lagði 9. bekkur land undir fót og heimsótti Súðavík. Byrjað var á Langeyri, hvalbein skoðuð, farið í fjöru og MURR verksmiðjan heimsótt. Næst var gengið í Melrakkasetrið þar sem Jónas Gunnlaugsson tók á móti hópnum og sagði frá safninu. Að lokinni góðri heimsókn í Melrakkasetrið var farið í Raggagarð, skvett aðeins úr klaufunum og nemendur létu ekki rigninguna á sig fá.