Heimsókn til Bolungarvíkur
16.05.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í morgun fór árgangurinn í mjög vel heppnaða heimsókn til Bolungarvíkur. Lagt var af stað kl. 8:30 með Elíasi Sveinssyni og haldið í Náttúrugripasafnið. Þar tók Kristjana Einarsdóttir við hópnum, kynnti safnið og afhenti nemendum verkefnahefti sem þeir unnu svo. Verkefnin voru fjölbreytt, enda mikið að sjá og rannsaka s.s. þörunga, jarðgöng, fjölmargar tegundir fugla, sjávardýr, spendýr og ýmislegt fleira.
Hópurinn fékk sér svo nesti á safninu, áður en haldið var í fjöruferð fyrir innan kaupstaðinn. Þar var ýmislegt sér til gamans gert. Sumir léku sér í flæðarmálinu, léku sér með rekavið, eða tíndu skeljar og kuðunga. Aðrir voru mjög skapandi í listaverkum í sandinn og leit m.a.s. ein smásaga dagsins ljós. Því miður er ekki víst að hún lifi lengi í sandinum, en hana má sjá hér að neðan og á ljósmyndum eins og sjá má á myndum úr ferðinni.
Rútan kom svo kl. 12:00 og fóru blautir og sælir krakkar heim eftir góðan dag í Bolungarvík.
Bolungarvík 16. maí 2012
Draugalíf
Einu sinni fyrir langa löngu var draugur. Hann hét Siggi. Hann var hræddur við mömmu sína. Hún var vond norn með risabólu á nefinu. Hún átti líka vondan ljótan dreka. Hann hét Dúddi og vildi að nornin og draugurinn myndu fara að skylmast. Drekinn sat í áhorfendastúkunni. Nornin var í hættu af því að draugurinn var betri. Drekinn var hræddur um að nornin sín dæi. Þetta var orðið mjög spennandi og nú kom að því að nornin dó og drekinn varð leiður. En Siggi varð glaður og þá varð partý í höllinni. Köttur úti í mýri, setti upp á sig stýri, úti er ævintýri.
Höfundar: Kolfinna Íris Rúnarsdóttir og Jakob Daníelsson
Ritari: Kolfinna Íris
Myndskreytingar: Jakob








