Heimsókn skattstjóra til 10 bekkinga

11.04.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í gær miðvikudag kom Rósa Ingólfsdóttir skattstjóri í heimsókn og fræddi 10. bekkinga um skattamál þeirra. Flutti hún góðan fyrirlestur og voru nemendur mjög duglegir að spyrja um ýmislegt sem brann á vörum þeirra varðandi þeirra skattamál.