Heimsókn lögreglunnar í 7. bekk
16.12.2011 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Á fimmtudaginn komu tveir lögreglumenn í heimsókn til okkar í 7. bekk. Ástæðan fyrir henni var sú að undanfarið hefur sést til nemenda 7. bekkjar vera húkka sér far, til og frá íþróttahúsinu á Torfnesi. Þegar nemendurnir hafa verið á leiðinni úr leikfimi hafa þeir nánast staðið út á götu, þar sem þeir sjást illa og hefur töluverð hætta skapast af þessu. Lögreglumennirnir bentu þeim einnig á að í umferðinni væru misgóðir ökumenn og að sumir hverjir teldust varla hæfir til að aka bíl. Nemendurnir tóku þessari heimsókn alvarlega og lofuðu lögreguþjónunum að hætta að húkka sér far.








