Heimsókn í banka

12.04.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Nú nýlega fóru nemendur 9. bekkjar í heimsókn í banka bæjarins og fengu fræðslu um ýmislegt sem við kemur fjármálum. Skipt var í tvo hópa, annar hópurinn fór í Landsbankann og hinn í Íslandsbanka. Báðir hóparnir stóðu sig mjög vel, nemendur voru kurteisir og prúðir og spurðu gáfulegra spurninga eins og þeirra var von og vísa. Móttökurnar voru glæsilegar á báðum stöðum, góðar veitingar og mikilvægar upplýsingar. Var gerður góður rómur að þessum heimsóknum, nemendur voru margs vísari þegar heim kom og hafa eflaust getað frætt fólkið sitt heima.