Heimsókn í Orkubú Vestfjarða

28.05.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í morgun fórum við í heimsókn í orkustöð Orkubús Vestfjarða við Mjósund. Henry Bæringsson tók á móti hópnum og sýndi okkur stöðina ásamt þeim vélum og búnaði sem þar er að finna til raforkuframleiðslu.


Í lokin bauð svo OV öllum upp á svaladrykk og Prince Polo sem þegið var með þökkum. Við þökkum Orkubúinu kærlega fyrir höfðinglegar og fræðandi móttökur.