Heimsókn í Jónsgarð og Langafi prakkari.
25.09.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í dag fórum við í haustlaufaferð í Jónsgarð og tíndum fullt af marglitum laufblöðum. Við ætlum síðan að nota þau í ýmsa vinnu á næstunni. Þessi vika er búin að vera viðburðarík. Á mánudaginn fórum við í göngutúr og leituðum að umferðarmerkjum. Á þriðjudaginn fegnum við góða heimsókn þegar Möguleikhúsið heimsótti okkur með leiksýninguna Langafi prakkari. Þessir langafar geta geta greinilega verið mjög skemmtilegir og gaman væri að allir ættu svona langafa eins og Anna í leikritinu. Hann kunnu nú að bregað á leik, sjá það spaugilega í lífinu og njóta lífsins. Við erum líka búin að vera að æfa okkur að lesa og skrifa og, vinna með ýmis munstur í stærðfræði og tala um hvaða reglur þurfa að vera í skólanum svo öllum líði vel.








