Heimsókn í Edinborgarhúsið!

15.03.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í upplýsingatæknitíma í vikunni fóru krakkarnir í heimsókn í Edinborgarhúsið. Ólöf Dómhildur starfsmaður Edinborgarhússins tók á móti þeim og sagði þeim frá tilgangi menningarhússins. Í Edinborgarhúsinu er þessa dagana uppi margmiðlunarsýning. Hún kynnti sýninguna og sagði þeim frá verkinu og hugsun listamannsins á bak við það.


Í framhaldi af sýningunni fóru þau í klippiforrit í tölvunum þar sem þau lærðu grunnatriði stuttmyndagerðar.