Heimsókn frá slökkviliði Ísafjarðar

04.12.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í dag fengum við heimsókn frá Slökkviliði Ísafjarðar.  Þar voru þeir Hemmi og Hlynur á ferð.  Þeir fræddu okkur um eldvarnir og mikilvægi rýmingaráætlunar í heimahúsum.  Þeir komu einnig færandi hendi því krakkarnir fóru heim með plakat af Loga og Glóð, bók um eldvarnir, sögubók um Loga og Glóð og vasaljós.  Aftast í sögubókinni eru svo spurningar sem krakkarnir eiga að svara (við lestur bókarinnar) og skila svo til kennarans.  Þar með eru þau þátttakendur í eldvarnagetraun sem haldin er fyrir þriðja bekk ár hvert.  Vegleg verðlaun hafa verið fyrir þá sem vinna í þessari getraun og hafa vinningshafar oft komið frá Ísafirði og vonum við að svo verði núna.