Heimsókn frá Gídeonfélaginu
07.11.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í morgun kom Arnór Magnússon frá Gídeonfélaginu í heimsókn til okkar. Hann færði öllum nemendum Nýja testamentið að gjöf og sagði þeim frá bókinni. Við ætlum að geyma þær fyrst í stað í skólanum, þar sem við munum jafnvel nýta þær í kristinfræðinni þegar nær dregur jólum.
Það er ekki sjálfgefið að allir nemendur séu kristinnar trúar, en við teljum öllum hollt að kynnast sem flestum trúarbrögðum, enda er gert ráð fyrir því í Aðalnámskrá grunnskóla.
Í markmiðum skólans segir að nemendur eigi að geta gert grein fyrir helstu atriðum kristni ásamt helstu trúarbrögðum heims, táknum þeirra, siðum og hefðum.








