Heimsókn á bæjarbókasafnið

11.12.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Á mánudag og þriðjudag í þessari viku fóru nemendur 8. bekkjar í heimsókn á Bæjarbókasafnið í Safnahúsinu. Erindið var að skoða safnið og kynna okkur svolítið þann fjölbreytta kost sem þar er í boði. Edda Kristmundsdóttir tók á móti okkur og sagði frá safninu og vakti athygli á nýjum bókum, bókum á ensku, teiknimyndasögum og ýmsu fleiru spennandi. Margir höfðu tekið bókasafnsskírteini með sér og notuðu tækifærið til að fá lánaðar bækur og aðrir keyptu sér ný skírteini. Við kíktum einnig upp í salinn á annarri hæð og skoðuðum sýningu um jólavættir sem Ómar Smári myndlistarmaður hefur sett upp þar.


Það er alltaf notalegt að heimsækja bókasafnið og tilvalið að gera það að föstum lið í dagsins önn. Við þökkum kærlega fyrir móttökurnar og ætlum að koma fljótlega aftur.