Heimsókn á Suðureyri

26.05.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Á fimmtudaginn fór 1. bekkur með rútum til Suðureyrar að heimsækja fiskvinnslufyrirtækin þar. Þetta var ævintýraferð, við sáum margskonar sjávardýr, sel, hval og marga fiska. Frystihúsið Íslandssaga, sem er frystihús, Klofningur, sem þurrkar fisk og loks fiskvinnslan hans Ævars sem vinnur fóður úr beinujm og roði ásamt ýmsu öðru. Í lokin fingu allir köku og safa og fóru saddir og sælir heim.