Heimsókn á Bæjarbókasafnið
05.10.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í dag fórum við í heimsókn á Bæjarbókasafnið á Ísafirði. Þar tók Edda á móti okkur og sýndir okkur safnið. Við fræddumst m.a. um hvernig bækurnar eru flokkaðar niður og geymdar á mismunandi stöðum, hvaða umgengisreglur gilda á bókasafninu og hvar má setjast niður og lesa. Þeir sem ekki áttu bókasafnsskírteini fylltu út eyðublað og fá frítt skírteini afhent í skólanum í næstu viku. Ég var mjög stolt af krökkunum, þeir voru til fyrirmyndar í öllu, gegnu vel um og voru kurteis.








