Heimilisfræði
12.09.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Kennsluáætlun í heimilisfræði, val 9.og 10.bekkur, 2012-2013
Kennari: Guðlaug Jónsdóttir
Kennslustaður: Heimilisfræðistofa 119
Kennslustundafjöldi: 3 stundir á viku hálfan vetur
Markmið:
- Að nemendur geri sér grein fyrir því að hollt og gott mataræði ásamt hæfilegri hreyfingu og hvíld eru meginforsenda fyrir andlegu og líkamlegu heilbrigði
- að nemendur tileinki sér þekkingu um hlutverk næringarefnanna
- að nemendur kynnist hinu víðtæka hugtaki sjálfbær þróun
- að nemendur fái góða þjálfun í verklegri vinnu í eldhúsi
- að nemendur geri sér grein fyrir nauðsyn hreinlætis á heimilum
- að nemendur tileinki sér fallega borðsiði og almenna kurteisi
- að nemendur læri að skapa fallega og eftirsóknarverða stemmningu í kringum máltíðir
Námsmat: Einkunn fyrir færni gefin að vori í tölustöfum (90% verkleg vinna, 10% bókleg). Einnig fá nemendur einkunnir í bókstöfum fyrir þá þætti sem falla undir gildi skólans – virðing, samhugur, menntun (sjá nánar matslista).
Námsgögn: Matur og menning, Heimilisfræði unglingastig uppskriftir, annað efni frá kennara
Kennsluáætlun:(Getur alltaf færst eitthvað til vegna hagræðingar í innkaupum). Fræðsla og umræður um ýmislegt, sem fellur undir markmiðin hér að ofan, samhliða verklegri kennslu.
- Kynning um starf vetrarins. Chili con carne (bls: 67), hrísgrjón, salat. Snittubrauð með osti og kryddi. (bls: 61). Grasamjólk. Umræður um hollt mataræði og heilbrigðan lífsstíl.
- Lúxusfiskréttur. Bollubrauð (bls: 58). Berjabaka með ís. Lagt inn verkefni um heilbrigðan lífsstíl.
- Útikennsla. Fiskur og grænmeti í álpappír. Naan-brauð. Hættur varðandi opinn eld. Slökkvitæki – teppi. Skrá heima næringu í einn dag.
- Taco-pítsa. Sjálfbær þróun/umhverfið.
- Snittur m/hangikjöti, pitsusnúðar, skúffukaka og kakó. Matartengdir kvillar og sjúkdómar.
- Ítalskur baunaréttur (bls: 84). Ítölsk brauð (bls: 54). Snúðakaka. Matreisluaðferðir.
- Indverskur kummin-kjúklingaréttur. Bounty terta. Naan-brauð. Örverur – hreinlæti.
- Grænmetislasagne. Ostaslaufur (bls: 56). Ostakaka. Grænm.fæði.
- Fiskibollur með lauksósu, kartöflum og salati. Eftirlæti blómasalans. Undirbúningur fyrir smáréttaveislu. Matarmenning.
- Sushigerð. Japan. Skjákynning – sýnikennsla. Borðað með prjónum. Undirbúningur fyrir smáréttaveislu – reikna út kostnað. Hvernig höldum við veislu?
- Smáréttaveisla. Skreytt borð, tónlist, gestir.
- Pastasalat með kjúklingi og heimalagaðri teriyakisósu. Brauðstangir. Vatnsdeigsbollur. Kynna piðarkökuhúsagerð, búa til deig.
- Piparkökuhús, bakstur. Setja saman. (Eftir áramót indverskur chili-kjúklingur).
- Piparkökuhús skreytt. (Eftir áramót aukaverkefni).
- Austurlenskar hakkbollur með sætri chilisósu. Marengsbotnar. Mömmukökur. Desert.
- Jólakaffi. Marengsterta, heitur brauðréttur, piparkökur, setja saman mömmukökur, kakó.








